NÚVITUND
Núvitund er sú vitund sem verður til við að veita því athygli sem er að gerast án þess að dæma það (Kabat-Zinn and Kabat-Zinn, 2014)
Með öðrum orðum er núvitund að veita því athygli sem er að gerast núna, bæði innra með okkur og í kringum okkur, með góðvild og forvitni. Núvitund er ekki bara einföld athygli, hún tengir hug og hjarta.
Þegar þú ferð að veita hlutum athygli með núvitund, breytist samband þitt við heiminn, þú sérð meira og þú sérð dýpra. “Að vita hvað þú ert að gera um leið og þú ert að gera það er kjarninn í núvitundarþjálfun”(Kabat-Zinn, 2004).
Rannsóknir sýna að núvitund getur verið hjálpleg á fjölbreyttan hátt, til dæmis:
Hér hleður þú niður hljóðskrám. Á þessum hljóðskrám eru núvitundaræfingar sem mælt er með að gerðar séu með barninu. Núvitundaræfingar eru eins og allar aðrar æfingar. Því oftar sem þú æfir þig, þeim mun meira færð þú út úr þeim. Hægt er þjálfa núvitund á tvennan máta, með formlegum og óformlegum æfingum.
Hver þáttur inniheldur núvitundaræfingu sem talinn er hæfa þeim þætti. Sumir þættir hafa sömu núvitundaræfingu. Tilgangur endurtekninga er að hjálpa þér að ná betri tökum á núvitund. Hver þáttur inniheldur núvitundaræfingu sem talinn er hæfa þeim þætti. Sumir þættir hafa sömu núvitundaræfingu. Tilgangur endurtekninga er að hjálpa þér að ná betri tökum á núvitund.
Núvitundaræfing í tengslum við: Sjálfstiltrú; Vaxtarhugarfar
Núvitundaræfing í tengslum við: Félagsleg seigla; Leiðtogafærni
Núvitundaræfing í tengslum við: Endurskoðun hugarfars; Lausn vanda; Tilfinningaleg seigla
Núvitundaræfing í tengslum við: Sjálfsþekking; Sjálfsstjórn
Núvitundaræfing í tengslum við: Félagsvitund; Færni í samböndum
Núvitundaræfing í tengslum við: Autokontzientzia; Autorregulazioa; Kontzientzia soziala